Teymið okkar samanstendur af fagfólki með áratuga reynslu úr auglýsingabransanum og framleiðslu sjónvarpsauglýsinga.
Það getur verið flókið fyrir fyrirtæki sem vilja búa til skemmtilegt efni en eru með litla reynslu af stafrænum miðlum og vita ekki alveg hvernig þau eiga að snúa sér í þeim málum. Þá kemur Silfra til sögunnar.
Við sérhæfum okkur í framleiðslu á stafrænum miðlum fyrir markað sem er sífellt að stækka og hjálpum fyrirtækjum að koma sér á framfæri í hinum stafræna heimi og ná til fleiri viðskiptavina með spennandi og grípandi efni.
Sigrún María
Yfirframleiðandi og verkefnastjóri
Sigrún María starfaði sem framleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu Skot áður en hún kom til liðs við Silfru. Hún hefur framleitt bæði auglýsingar og sjónvarpsþætti fyrir íslenskan markað.
Hafa samband
Sendu okkur línu eða hafðu samband í síma, Við hlökkum til að heyra frá þér!